Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2021 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sömu reglur um íþróttastarf barna og ungmenna innan sem utan skóla

Sú breyting hefur nú átt sér stað að fyrirkomulag íþróttakennslu barna og ungmenna fellur nú undir almenna reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Ný reglugerð heilbrigðisráðherra veitir umtalsvert svigrúm til íþróttaiðkunar og gilda sömu reglur um íþróttastarf innan skóla og utan frá og með morgundeginum, 24. febrúar.

Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna, innan- og utandyra, með og án snertingar, eru heimilar. Hámarksfjöldi þátttakenda hjá börnum fæddum 2005 og síðar er 150, en 50 hjá þeim sem eldri eru.

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar sem gildir til og með 17. mars 2021.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum