Eftirlitsnefnd fasteignasala 2019-2022
Eftirlitsnefnd fasteignasala er skipuð skv. 1. mgr. 18. gr. laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa og annast eftirlit með störfum fasteignasala samkvæmt fyrirmælum laganna. Ráðherra skipar þrjá nefndarmenn og varamenn þeirra til þriggja ára í senn. Einn nefndarmanna skal vera fasteignasali og einn löggiltur endurskoðandi. Hinn þriðji, sem vera skal formaður nefndarinnar, skal vera lögfræðingur og fullnægja skilyrðum til að gegna embætti héraðsdómara. Varamenn skulu fullnægja sömu skilyrðum og aðalmenn.
Í nefndinni eiga sæti:
- Þórður Bogason, hæstaréttarlögmaður,formaður
- Björg Sigurðardóttir, löggiltur endurskoðandi
- Grétar Jónasson, löggiltur fasteignasali
Varamenn:
- Kristín Benediktsdóttir, lektor, varaformaður
- Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fassteignasali
- Lárus Finnbogason, löggiltur endurskoðandi.