A.06. Aðgengi að sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Dagmar Huld Matthíasdóttir, heilbrigðisráðuneytinu - [email protected]
Reinhard Reynisson, Byggðastofnun - [email protected]
Fréttir
07.07.23 Starfshópur um bætta mönnun og jafnara aðgengi að heilbrigðisþjónustu skilar tillögum.
Tillögur um sértækar aðgerðir til að styrkja mönnun heilbrigðisþjónustu og jafna aðgengi
05.01.23 Starfshópur um bætta mönnun og jafnara aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu
Verkefnið
Markmið: Að aðgangur að ýmiss konar sérfræðiþjónustu óháð búsetu verði jafnaður.
Stutt lýsing: Skoðað verði hvort fjölga megi sérfræðingum á heilbrigðissviði á landsbyggðinni með því að nýta ákvæði í lögum um Menntasjóð námsmanna þar sem kveðið er á um sérstaka ívilnun vegna námsgreina sem og sérstaka ívilnun vegna námsgreina á sérstökum svæðum. Lögð verði áhersla á mikilvægi þess að tryggja ýmiss konar sérfræðiþjónustu, til að mynda þjónustu geðhjúkrunarfræðinga, sálfræðinga, talmeinafræðinga og sérfræðilækna, á landsbyggðinni.
- Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun
- Dæmi um samstarfsaðila: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga og sveitarfélög.
- Tímabil: 2022–2023.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Heilbrigðisstefna og menntastefna.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 3.
- Tillaga að fjármögnun: 2 millj. kr. úr byggðaáætlun.