A.11. Heildstæð skólaþjónusta
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Guðni Olgeirsson, mennta- og barnamálaráðuneyti - [email protected]
Fréttir
06.03.23 Fjölsóttur þjóðfundur um framtíð skólaþjónustu
Verkefnið
Markmið: Að heildstæð skólaþjónusta á leik- og grunnskólastigi á landsbyggðinni verði efld og þróuð og samhæfð félags- og heilbrigðisþjónustu.
Stutt lýsing: Heildstæð skólaþjónusta, sem snýst um ráðgjöf, leiðbeiningar og stuðning við starfsemi skóla og starfsfólk, styðji við skólaþróun og starfsþróun kennara, veiti nemendum almennan og sértækan stuðning og foreldrum þeirra leiðbeiningar og ráðgjöf eftir þörfum. Lágmarksviðmið um skólaþjónustu verði skilgreind og því fylgt eftir að þjónustan sé veitt í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Heildræn nálgun verði tryggð með því að skóla-, heilbrigðis- og félagsþjónusta verði fléttuð saman með markvissu samstarfi milli mismunandi kerfa og þjónustu og sem bestu aðgengi að þjónustunni óháð landfræðilegri staðsetningu og stærð sveitarfélaga. Hagnýtt verði tækifæri sem felast í auknu samstarfi sveitarfélaga, samnýtingu og samhæfingu sérfræðiþekkingar, m.a. með hjálp stafrænna lausna. Sérstök áhersla verði lögð á að auka stuðning við nemendur með annað tungumál en íslensku og uppbyggingu og þróun samhæfðrar skólaþjónustu á þeim stöðum þar sem þörfin er brýnust.
- Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Rekstraraðilar skóla, landshlutasamtök sveitarfélaga, Menntamálastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa.
- Dæmi um samstarfsaðila: Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, háskólar, Fjölmenningarsetur, skólastjórnendur og fyrirtæki í stafrænni þróun tæknilausna á sviði velferðar- og menntamála.
- Tímabil: 2022–2024.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Menntastefna, þingsályktun um barnvænt Ísland.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 4, einkum undirmarkmið 4.1, 4.2, 4.7 og 4.a.
- Tillaga að fjármögnun: 26 millj. kr. af byggðaáætlun.