C.04. Borgarstefna
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Jóhanna Sigurjónsdóttir, innviðaráðuneytinu - [email protected]
Fréttir
14.12.22 Ó borg, mín borg, ...
27.10.22 Starfshópur skipaður um mótun borgarstefnu
Verkefnið
Markmið: Að stærstu þéttbýlissvæðin verði efld og samkeppnishæfni þeirra og hlutverk í byggðaþróun landsins styrkt.
Stutt lýsing: Með hliðsjón af vinnu starfshóps um mótun höfuðborgarstefnu og starfshóps um svæðisbundið hlutverk Akureyrar verði mótaðar stefnur sem annars vegar skilgreini hlutverk Reykjavíkur sem höfuðborgar og stuðli að aukinni alþjóðlegri samkeppnishæfni höfuðborgarsvæðisins og hins vegar hlutverk og uppbyggingu Akureyrar sem svæðisborgar sem geti boðið upp á aukna fjölbreytni í þjónustu, menningu og atvinnu¬tækifærum. Í vinnunni verði viðmið OECD um mótun og inntak borgarstefnu lögð til grundvallar eftir því sem við á.
- Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneyti, Reykjavíkurborg, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Akureyrarbær og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra.
- Dæmi um samstarfsaðila: Ráðuneyti, Byggðastofnun, Skipulagsstofnun og ýmsir haghafar.
- Tímabil: 2022–2023.
- Tillaga að fjármögnun: 4 millj. kr. úr byggðaáætlun.