A.12. Jafnræði til náms
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Guðni Geir Einarsson, innviðaráðuneytinu - [email protected]
Verkefnið
Markmið: Að aðgengi verði aukið að kennurum með sérþekkingu í tilteknum fag¬greinum og á tilteknum námssviðum á grunn- og framhaldsskólastigi.
Stutt lýsing: Nemendur hafi aðgengi að sérfræðiþekkingu kennara með sérhæfingu í tilteknum faggreinum eða á tilteknum námssviðum, kennslu og kennsluráðgjöf, m.a. stafrænt, svo að jafnræði þeirra til náms óháð landfræðilegri staðsetningu verði tryggt eins og kostur er. Mönnun í tilteknum faggreinum og á tilteknum námssviðum í grunn- og framhaldsskólum verði kortlögð og þörf fyrir rafræna kennslu og kennsluráðgjöf metin.
- Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Menntamálastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa.
- Dæmi um samstarfsaðila: Háskólar, fagfélög skólastjórnenda og kennara og fyrirtæki í stafrænni þróun tæknilausna á sviði velferðar- og menntamála.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Menntastefna, þingsályktun um barnvænt Ísland.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 4, einkum undirmarkmið 4.1, 4.3, 4.4, 4.5 og 4.7.
- Tillaga að fjármögnun: Mennta- og barnamálaráðuneytið.