C.06. Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Lísa Margrét Sigurðardóttir, innviðaráðuneytinu - [email protected]
Fréttir
23.12.22 Hvað er byggt í hverju sveitarfélagi?
Verkefni
Markmið: Að raunhæfar og markvissar húsnæðisáætlanir verði í gildi hjá öllum sveitar¬félögum á stafrænu formi og þær endurskoðaðar árlega.
Stutt lýsing: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vinni að því að innleiða stafrænar hús¬næðis¬áætlanir með það að markmiði að auðvelda sveitarfélögum gerð þeirra og uppfærslu og auka áreiðanleika þeirra upplýsinga sem þar koma fram. Sveitarfélög skili áætlunum sínum í áætlanakerfi HMS. Stuðlað verði að því að sveitarfélög vinni saman að gerð húsnæðisáætlana, t.d. á vettvangi landshlutasamtaka. Framkvæmd verði sameiginleg þarfagreining, m.a. í tengslum við landsskipulagsstefnu, svæðisskipulag og þá þætti í aðalskipulagi sem snúa að framboði og eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði, einkum til leigu. Í húsnæðisáætlunum komi fram hvernig íbúðaþörf mismunandi hópa verði mætt, þ.m.t. að fötluðu fólki sem býr á stofnunum eða herbergjasambýlum verði boðnir aðrir búsetukostir og staðan á því verkefni kortlögð og metin við árlega endurskoðun húsnæðisáætlunar.

- Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
- Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög og Skipulagsstofnun.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Húsnæðis- og skipulagsáætlanir sveitarfélaga, landsskipulagsstefna.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 11, einkum undirmarkmið 11.1, 11.3 og 11.a.
- Tillaga að fjármögnun: 12,5 millj. kr. af byggðaáætlun.