A.05. Fjarheilbrigðisþjónusta
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Helga Harðardóttir, heilbrigðisráðuneytinu - [email protected]
Fréttir
19.09.23 Fjarheilbrigðisþjónusta er byggðamál
27.01.22 Verkefninu er stýrt frá Miðstöð um rafrænar heilbrigðislausnir hjá Embætti landlæknis. Verkefnisstjórar hafa verið ráðnir á heilbrigðisstofnanir landsins til að leiða og efla framþróun á sínu svæði. Framlagið af byggðalið er m.a. ætlað til tækjakaupa og hugbúnaðargerð. Árið 2020 var gerður tveggja ára samningur við Ljósið, sem gengur út á að veita íbúum á landsbyggðinni þjónustu. Samningurinn gildir til ágúst 2022 og nemur 34 m.kr. Haustið 2021 var veittur 3 m.kr. styrkur til átröskunarteymis LSH til að þróa hugbúnað tengt stafrænni matarstuðningsmeðferð og 11,5 m.kr. styrkur til HVEST vegna tækjakaupa tengt fjaraugnlækningum.
08.03.22 Fjaraugnlækningar á Vestfjörðum og efling fjarheilbrigðisþjónustu á Suðurlandi
18.12.20 Verkefninu er stýrt frá Miðstöð um rafrænar heilbrigðislausnir hjá Embætti landlæknis. Verkefnisstjórar hafa verið ráðnir á heilbrigðisstofnunum landsins til að leiða og efla framþróun á sínu svæði. Framlag samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis er fyrst og fremst ætlað til tækjakaupa á landsbyggðinni. Á árinu 2020 gerði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tveggja ára samning við Ljósið, sem gengur út á að auðvelda fólki sem búsett er á landsbyggðinni og hefur fengið krabbamein og aðstandendum þeirra aðgengi að þjónustu Ljóssins. Samningurinn gildir til ágúst 2022 og nemur 34 m.kr.
28.08.20 Samið við Ljósið um þjónustu við fólk á landsbyggðinni
29.11.19 Verkefnið gengur skv. áætlun. Framlag af byggðalið fer fyrst og fremst í tækjakaup á landsbyggðinni.
7.10.19 Landspítali fær styrk til að þróa skilvirkari sérfræðiþjónustu við landsbyggðina
26.06.19 Fjarheilbrigðisþjónusta mikilvæg til að jafna aðgengi landsmanna
Verkefnið
Markmið: Að aðgengi að heilbrigðisþjónustu verði aukið og bætt með nýsköpun og nýt¬ingu tækni og fjarskipta við framkvæmd þjónustu.
Stutt lýsing: Með innleiðingu á fjarheilbrigðisþjónustu verði leitast við að jafna aðgengi almennings að almennri og sérhæfðri heilbrigðisþjónustu, svo sem læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, sálfræðingum og talmeinafræðingum. Jafnframt verði rafræn miðlun heilbrigðisþjónustu nýtt til að auka aðgengi að sérfræðiþekkingu, og þar með gagnkvæmri faglegri ráðgjöf, samráði og samstarfi, og með þeim hætti verði teymisvinna innan heilbrigðisþjónustunnar auðvelduð. Árangur aðgerðarinnar verði m.a. mæld¬ur í fjölda þeirra sem nýta sér sérfræðiþjónustu í gegnum netið.
- Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneyti.
- Framkvæmdaraðili: Embætti landlæknis og veitendur heilbrigðisþjónustu.
- Dæmi um samstarfsaðila: Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, heilbrigðisstofnanir, heilsugæslustöðvar, sveitarfélög, aðrir veitendur heilbrigðisþjónustu og fyrirtæki í staf¬rænni þróun tæknilausna á sviði heilbrigðismála.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Heilbrigðisstefna, nýsköpunarstefna, fjarskiptastefna.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 3.
- Tillaga að fjármögnun: 100 millj. kr. úr byggðaáætlun.