Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Drög að stefnu í neytendamálum í samráðsgátt: Níu skilgreindar aðgerðir

Menningar- og viðskiptaráðherra hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda, drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til ársins 2030.

Ráðgert er að stefnan verði lögð fram á Alþingi í maí, að loknu samráði.

Samkvæmt drögunum er framtíðarsýnin sú að á Íslandi verði traust og nútímaleg löggjöf á sviði neytendamála, sem stenst samanburð við nágrannalönd Íslands og stuðli að virkri neytendavitund og trausti neytenda m.a. hvað varðar reglufylgni og markaðseftirlit. Jafnframt að hér sé fagleg og skilvirk stofnanaumgjörð neytendamála, sem starfi með hagsmuni neytenda að leiðarljósi. Til að tryggja þessa framtíðarsýn er í drögunum sett fram aðgerðaáætlun sem unnið verði eftir til ársins 2030. Um er að ræða níu skilgreindar aðgerðir sem ná yfir uppfærslu og nútímavæðingu löggjafar á sviði neytendamála, aukna áherslu á netviðskipti og stafvæðingu, aukna neytendavernd á sviði fjármálaþjónustu og áherslu á fjármálalæsi, sérstakar þarfir viðkvæmra hópa neytenda, aukna neytendavernd við fasteignakaup, græna umbreytingu á sviði neytendamála, styrkingu stofnanaumgjarðar neytendamála, notkun íslensku við markaðssetningu og áherslu á rannsóknir, upplýsingagjöf og fræðslu til að efla neytendavitund.

„Mikil vinna hefur átt sér stað innan menningar- og viðskiptaráðuneytisins á undanförnum til þess að undirbyggja raunverulegar aðgerðir í þágu neytenda. Aðgerðir sem við viljum koma í verk sem fyrst og til framtíðar. Ég er sannfærð um að þær aðgerðir sem ný neytendastefna telur fram muni bæta samfélagið okkar og neytendavernd í þágu okkar allra. Sterk neytendvitund hefur sjaldnast verið mikilvægari og þá er skýr löggjöf og regluverk lykill að upplýstari ákvörðunum,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum