Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2024 Utanríkisráðuneytið

Langtímastefna fyrir norrænt varnarsamstarf undirrituð

Høgni Hoydal, utanríkisráðherra Færeyja, Troels Lund Poulsen, varnarmálaráðherra Danmerkur, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, Antti Häkkänen, varnarmálaráðherra Finnlands, og Mininnguaq Kleist, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytis Grænlands.  - myndErla Ziskasen

Ný langtímastefna fyrir norrænt varnarsamstarf (NORDEFCO) til ársins 2030 var undirrituð á fundi varnarmálaráðherra Norðurlandanna sem lauk í Þórshöfn í dag. Þá ræddu ráðherrarnir um mikilvægi áframhaldandi stuðnings til Úkraínu og þróun öryggismála á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Að þessu sinni áttu fulltrúar stjórnvalda í Færeyjum og Grænlandi einnig sæti á fundinum.

 Stefnunni er ætlað að mæta nýjum öryggisáskorunum, efla sameiginlega varnargetu og öryggi ríkjanna sem og framlag þeirra innan Atlantshafsbandalagsins. Sem fyrr var rík samstaða á fundinum um mikilvægi þess að styðja áfram við varnarbaráttu Úkraínu, en ríkin hafa til þessa lagt fram um 13 milljarða evra í varnartengdan stuðning til handa Úkraínu.

„Fundurinn hér í Þórshöfn var um margt sögulegur. Við höfum markað nýja framtíðarstefnu fyrir norrænt varnarsamstarf við gjörbreyttar aðstæður í öryggismálum og nú með öll Norðurlöndin innan vébanda Atlantshafsbandalagsins. Samstarf ríkjanna hefur eflst mjög hratt á síðustu árum með virkri þátttöku Íslands. Gott og náið samstarf Norðurlandanna eykur öryggi íbúa þjóðanna og styrkir um leið framlag þeirra til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Þróun öryggismála á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi hefur verið á oddinum í tíð formennsku Danmerkur í NORDEFCO og voru þau mál því ofarlega á baugi á fundi varnarmálaráðherranna. Svæðið hefur vaxandi öryggispólitískt vægi fyrir Evrópu og Norður-Ameríku og ráðherrarnir sammála um mikilvægi þess að viðhalda stöðuvitund, fælingu og vörnum á svæðinu.

Sjá nánar yfirlýsingu fundarins og stefnumið fyrir norrænt varnarsamstarf.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum